Sérfræðingar um Ítalíu
Aðstandendur InItalia eru sérfræðingar um Ítalíu, eftir að hafa búið þar og starfað um árabil, auk þess að hafa ferðast og upplifað töfra landsins með yfir þúsund Íslendinga í gegnum árin.
Öflugt tengslanet
InItalia býr að breiðu og öflugu tengslaneti á Ítalíu sem kemur sér vel þegar skipuleggja þarf óhefðbundnar uppákomur. Hvort heldur að útvega leyfi fyrir kór til að syngja í dómkirkjunni í Lucca, eða skipuleggja yfir 100 manna brúðkaupsveislu upp í sveit.
Við erum í nánu sambandi við skólastofnanir vítt og breitt um Ítalíu og höfum skipulagt fjölda skólaheimsókna í gegnum árin.
Sérhannaðar ferðir
InItalia skipuleggur ferðir á svæðum sem við þekkjum vel frá fyrstu hendi.
Við höfum lengi álitið að lífið sé of stutt fyrir slæm hótel og því leggjum við okkur sérstaklega fram við finna gæðahótel fyrir okkar ferðafélaga, hvar sem við erum.
Ferðir & námskeið á vegum InItalia 2025
Kennara- & skólaferðir
Sérferðir
2025 / 2026 / 2027
Fáið Verðtilboð
Marche, Umbria & Róm
8 dagar
28. maí - 4 júní 2025
329.000 á mann m.v. 2 í herbergi
Hópar & Fyrirtæki
Sérferðir
2025 / 2026 / 2027
Fáið Verðtilboð
Námsfrí á Ítalíu í Marche
Ítölskunámskeið
30. júní - 25 júlí 2025
Frá 1.190 Evrum á mann
Veislur & Viðburðir
Sérferðir
2025 / 2026 / 2027
Fáið Verðtilboð
Sagan okkar
Við hjónin áttum okkar fyrsta stefnumót í Róm árið 2012, þegar Guðjón var þar í skiptinámi, að ljúka við meistaragráðu frá Copenhagen Business School. Eftir að hafa ráfað um borgina langt fram á nótt, þar sem við sýndum hvort öðru uppáhaldsstaðina okkar, vorum við bæði kolfallin fyrir hvort öðru og það var ekki aftur snúið. Þrátt fyrir að hafa verið uppáhaldsborg okkar beggja áður, á Róm nú sérstakan stað í hjörtum okkar, sem og Ítalía.
Umsagnir ferðalanga
“Ein skemmtilegasta og eftirminnilegasta ferð sem ég hef farið í. Ég fór með Initalia til Marche héraðsins, Umbria og Rómar í júlí. Allir áfangastaðir voru hver öðrum fegurri, að upplifa miðaldarbæina Gubbio og Asissi var einstakt og dálítið eins og að vera kominn aftur til miðalda. San marino var yndisleg og ekki má gleyma að nefna spa hótelið, Borgo Lanciano en umhverfið þar var sérstaklega fallegt og kyrrðin þar svo vel þegin. Allt var upp á tíu, farastjórn, rútuferðir, vínsmakkanir og fleira. Mæli eindregið með þessari mögnuðu ferð.”
Ingibjörg Reynisdóttir
Ferðin til Marche, Umbria og Rómar með Initalia sl. sumar var sannkölluð ævintýraferð. Jóhanna og Guðjón, fararstjórar og eigendur Initalia, pössuðu vel upp á hópinn og maður gat ekki annað en dáðst að Jóhönnu sem talar reiprennandi ítölsku og þekkir alla staðhætti á svæðunum sem við heimsóttum. Þótt dagskrá ferðarinnar lægi fyrir frá upphafi, var eins og fararstjórarnir nýttu sérhvert tækifæri til að koma hópnum á óvart og gleðja okkur með einstökum upplifunum sem við áttum engan veginn von á. Má þar helst nefna stórkostlegar vín- og matarupplifanir og alls konar annað spennandi. Við hjónin getum svo sannarlega mælt með Ítalíuferðum Initalia.
Hulda Karen & Guy
“Ég fór í frábæra sumarleyfisferð með Initalia, þeim Jóhönnu Guðrúnu og Guðjóni til Ítalíu í júlí 2024. Allt skipulag og utanumhald í ferðinni var ferðaskrifstofunni til mikils sóma. Góð hótel, góður matur og frábær fararstjórn. Jóhanna Guðrún og Guðjón eru vel staðkunnug á Ítalíu og þekkja menninguna þar, tala ítölsku og eiga auðvelt með að deila þekkingu sinni með hópnum sínum. Ég þakka kærlega fyrir einstaka ferð og hlakka til að ferðast aftur með Initalia til Ítalíu.”
Jarþrúður Ólafsdóttir
Ferðin mín um Marce, Umbria og Róm var æðisleg með Initalia. Þarna upplifði eg sjarmerandi þorp, frábæra staði, vínsmökkun kósy hótel og geggjaðan mat. Leiðsögnin í þessari ferð var framúrskarandi þar sem farið var i gegnum sögu og menningu þessara svæða. Frá dásamlegu umhverfi Umbria til menningarsögu Rómar, hver dagur var fullur af ævintýrum. Mæli eindregið með Initalia fyrir alla sem elska fegurð Ítalíu!
Selma Karlsdóttir
“Not all those who wander are lost.”
J.R.R. Tolkien