top of page

Sagan okkar

Jóhanna hefur dvalið lungan úr lífinu á Ítalíu. Hún er með MA frá Háskólanum La Sapienza í Róm í bókmennta- og tungumálafræði auk þess að vera að ljúka MA námi í íslenskri málfræði frá HÍ. Jóhanna kenndi ítölsku í HÍ um árabil, en hefur síðan kennt ítölsku við Menntaskólann við Hamrahlíð  sl. 20 ár, auk þess að kenna í fjarnámi í FÁ. Jóhanna er öllum hnútum kunnug á Ítalíu, enda hefur hún skipulagt Námsfrí á Ítalíu í samstarfi við Campus Magnolie í Castelraimondo í 18 ár. Yfir 1000 Íslendingar hafa notið leiðsagnar hennar í náminu þar og tengdum ferðum um Ítalíu. Saman höfum við hjónin skipulagt fjölda ólíkra ferða um Ítalíu fyrir einstaklinga og hópa, kóra- og kennaraferðir ásamt því að skipuleggja fjölda veislna og brúðkaupa þar, m.a. okkar eigið.

Screenshot 2024-03-08 at 00.07.57 2.png
bottom of page